Sjóvá - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. sem haldinn var 11. mars 2016 veitti stjórn félagsins heimild til að kaupa allt að 156.243.676 eigin hluti í félaginu, en það jafngildir um 10% af útgefnu hlutafé félagsins. Heimildina skal einungis nýta í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup á eigin bréfum.

Sami aðalfundur veitti stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. einnig heimild til þess að kaupa hluti í félaginu með framkvæmd endurkaupaáætlunar að hámarki 156.243.676 hlutir, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 2.000 milljónir króna. Heimildin gildir fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars 2017.

Stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. hefur á grundvelli fyrrgreindra samþykkta tekið ákvörðun um kaup á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupin munu að hámarki nema 25.000.000 hluta eða 1,6% af útefnum hlutum í félaginu, en þó þannig að heildarkaupverð verði ekki hærra en 300 milljónir króna. Áætlunin er í gildi til 30. september 2016 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu að hámarki nema 605.522 hlutum eða sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Kauphallar Íslands hf. í maí 2016. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Nánari upplýsingar veitir Hermann Björnsson, forstjóri. s. 440-2000