Í 23. viku 2016 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 2.976.364 eigin hluti fyrir 59,9 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
6.6.2016 | 09:30 | 908.788 | 20,25 | 18.402.957 | 30.149.464 |
7.6.2016 | 09:09 | 908.788 | 19,95 | 18.130.321 | 31.058.252 |
8.6.2016 | 09:30 | 908.788 | 20,25 | 18.402.957 | 31.967.040 |
9.6.2016 | 09:54 | 250.000 | 19,90 | 4.975.000 | 32.217.040 |
Samtals | 2.976.364 | 59.911.235 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 1. apríl 2016, sbr. og tilkynningu til Kauphallar þann dag.
TM hefur nú keypt samtals 23.814.529 hluti í félaginu sem samsvarar 99,2% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 499,3 milljónum króna. TM á nú samtals 4,5% af heildarhlutafé félagsins.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar sem var hrint í framkvæmd 1. apríl 2016 er hér með lokið.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is