Reglubundin tilkynning um kaup Sjóvá á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 24 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 17.198 eigin hluti að kaupverði 196.057 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
15.6.2016 11:16            17.198                    11,40          196.057    
Samtals   17.198      196.057    

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. júní 2016.

Sjóvá átti 10.521.295 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 10.538.493 eigin hluti eða sem nemur 0,67% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 622.720 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,04% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 7.250.388 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hluta eða sem nemur 1,6% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

 

Nánari upplýsingar veitir Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000