Niðurstaða víxlaútboðs og hækkun fjármögnunarheimildar


Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á stjórnarfundi í gær 27.júní 2016 hækkun fjármögnunarheimildar um 5,5 milljarða í formi skuldabréfa- og víxlaútgáfu ásamt bankaláni. Einnig staðfesti stjórn að taka tilboðum í víxla að fjárhæð samtals 1.640.000.000 kr. með flötum vöxtum 7,25% p.a. og gefa út víxla í nýjum flokki OR300317 sem því nemur.

Framangreint er í samræmi við samþykkta fjárhagsáætlun.