Viðskiptayfirlit júní 2016 – Nasdaq Iceland


Reykjavík, 1. júlí, 2016 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.

Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir júní 2016 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í júní námu 37.196 milljónum eða 1.771 milljónum á dag. Það er 41% lækkun frá fyrri mánuði, en í maí námu viðskipti með hlutabréf 2.982 milljónum á dag.  Þetta er 28% hækkun á milli ára (viðskipti í júní 2015 námu 1.386 milljónum á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group (ICEAIR), 9.464 milljónir, Marel (MARL), 6.567 milljónir, Haga (HAGA), 4.582 milljónir, N1 (N1), 3.615 milljónir og Eik fasteignafélags (EIK), 2.831 milljón.

·         Úrvalsvísitalan (OMXI8) lækkaði um 2,9% á milli mánaða og stendur nú í 1.777 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina, 25,6% (24,7% á árinu), Landsbankinn með 23,2% (23,5% á árinu), og Íslandsbanki með 18,8% (16,6% á árinu).

·         Í lok júní voru hlutabréf 20 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 990 milljörðum króna (samanborið við 1.029 milljarða í maí).

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 160 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 7,6 milljarða veltu á dag. Þetta er 45% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í maí námu 5,3 milljörðum á dag), en 12% lækkun frá fyrra ári (viðskipti í júní 2015 námu 8,6 milljörðum á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 137,9 milljörðum, viðskipti með íbúðabréf námu 7,3 milljörðum, viðskipti með ríkisvíxla 7,2 milljörðum og viðskipti með bankabréf námu 4,3 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKH 18 1009, 30,7 milljarðar, RIKB 25 0612, 20,0 milljarðar, RIKB 19 0226, 17,7 milljarðar, RIKB 16 1013, 15,6 milljarðar og RIKB 22 1026, 14,0 milljarðar.

·         Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn með mestu hlutdeildina 29,4% (20,6% á árinu), Kvika banki  með 15,1% (21,8% á árinu) og Íslandsbanki með 13,8% (18,0% á árinu).

·         Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) lækkaði um 0,77% í júní og stendur í 1.176 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) lækkaði um 0,80% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) lækkaði um 0,60%.

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

 

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,600 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 9.6 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm.

 

         Fjölmiðlar:
         Kristín Jóhannsd
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com


Attachments

2016_0701_Viðskiptayfirlit fyrir júní 2016.pdf