Í júní flutti félagið um 440 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 20% fleiri en í júní á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 22% og sætanýting var 83,6% samanborið við 84,2% á sama tíma í fyrra.
Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 29 þúsund í júní og fjölgaði um 3% á milli ára. Framboð félagsins var aukið um 12% samanborið við júní 2015. Sætanýting nam 68,3% samanborið við 74,7% í fyrra. Lakari sætanýting skýrist af viðhaldsskoðunum á Bombardier Q200 vélum félagsins og þar með meiri notkun á Bombardier Q400 vélum sem taka fleiri farþega. Einnig eru sveiflur í eftirspurn eftir flugi til Grænlands og var júní mánuður nokkuð lakari en á síðasta ári.
Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 12% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 6% frá því á síðasta ári. Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins jókst um 1% samanborið við júní í fyrra og herbergjanýting var 84,5% samanborið við 80,7% á síðasta ári.
MILLILANDAFLUG | JÚN 16 | JÚN 15 | BR. (%) | ÁTÞ 16 | ÁTÞ 15 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 440.423 | 366.559 | 20% | 1.547.643 | 1.300.034 | 19% |
Sætanýting | 83,6% | 84,2% | -0,7 %-stig | 80,3% | 81,1% | -0,8 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 1.609,4 | 1.317,8 | 22% | 5.821,4 | 4.785,0 | 22% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | JÚN 16 | JÚN 15 | BR. (%) | ÁTÞ 16 | ÁTÞ 15 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 29.201 | 28.309 | 3% | 143.721 | 137.981 | 4% |
Sætanýting | 68,3% | 74,7% | -6,4 %-stig | 71,7% | 72,0% | -0,3 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 16,7 | 14,9 | 12% | 67,7 | 64,7 | 5% |
LEIGUFLUG | JÚN 16 | JÚN 15 | BR. (%) | ÁTÞ 16 | ÁTÞ 15 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 100,0% | 100,0% | 0,0 %-stig | 100,0% | 100,0% | 0,0 %-stig |
Seldir blokktímar | 1.808 | 2.066 | -12% | 11.720 | 11.055 | 6% |
FRAKTFLUTNINGAR | JÚN 16 | JÚN 15 | BR. (%) | ÁTÞ 16 | ÁTÞ 15 | BR. (%) |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 9.456 | 8.917 | 6% | 53.366 | 49.111 | 9% |
HÓTEL | JÚN 16 | JÚN 15 | BR. (%) | ÁTÞ 16 | ÁTÞ 15 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 36.314 | 37.578 | -3% | 156.282 | 150.097 | 4% |
Seldar gistinætur | 30.669 | 30.340 | 1% | 121.665 | 114.362 | 6% |
Herbergjanýting | 84,5% | 80,7% | 3,7 %-stig | 77,8% | 76,2% | 1,7 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010