Í viku 27 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.211.044 eigin hluti að kaupverði 13.951.227 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
04.07.2016 | 11:45 | 605.522 | 11,55 | 6.993.779 |
06.07.2016 | 09:42 | 605.522 | 11,49 | 6.957.448 |
Samtals | 1.211.044 | 13.951.227 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. júní 2016.
Sjóvá átti 11.768.603 eigin hluti fyrir viðskiptin og á að þeim loknum 12.979.647 eigin hluti eða sem nemur 0,83% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 3.063.874 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,20% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 35.577.025 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hluta eða sem nemur 1,6% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000.