Við vinnslu hálfsársuppgjörs Tryggingamiðstöðvarinnar hf. 2016 hafa óskráðar eignir félagsins verið endurmetnar sem nemur á bilinu 1.000 - 1.200 m.kr. Hækkunina má fyrst og fremst rekja til viðskipta með undirliggjandi félög og nýs gengis fasteignasjóða. Þrátt fyrir slaka afkomu af skráðum fjárfestingaeignum það sem af er ári er engu að síður reiknað með að félagið geti staðið við áður útgefna áætlun um fjárfestingatekjur á fyrri árshelmingi. Aðrar fjárhagsupplýsingar liggja ekki fyrir en uppgjörið verður birt 24. ágúst nk
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson forstjóri, s. 5152609 / sigurdur@tm.is