Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung ársins 2016, miðvikudaginn 27. júlí 2016. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn fimmtudaginn 28. júlí 2016 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum. Kynningin hefst kl. 8:30 og verður í sal 2. Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.
Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-next/