Í viku 30 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.833.459 eigin hluti að kaupverði 20.918.093 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
25.07.2016 | 11:00 | 565.217 | 11,50 | 6.499.996 |
27.07.2016 | 11:43 | 38.132 | 11,53 | 439.662 |
27.07.2016 | 15:16 | 19.066 | 11,59 | 220.975 |
28.07.2016 | 09:32 | 605.522 | 11,46 | 6.939.282 |
29.07.2016 | 09:35 | 605.522 | 11,26 | 6.818.178 |
Samtals | 1.833.459 | 20.918.093 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. júní 2016.
Sjóvá átti 14.209.757 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 16.043.216 eigin hluti eða sem nemur 1,03% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 6.127.443 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,39% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 70.805.255 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hluta eða sem nemur 1,6% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000