Viðskiptayfirlit júlí 2016 - Nasdaq Iceland


Reykjavík, 2. ágúst, 2016 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.

Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir júlí 2016 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í júlí námu 30.286 milljónum eða 1.442 milljónum á dag. Það er 19% lækkun frá fyrri mánuði, en í júní námu viðskipti með hlutabréf 1.771 milljón á dag.  Þetta er 33% hækkun á milli ára (viðskipti í júlí 2015 námu 1.080 milljónum á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group (ICEAIR), 7.951 milljón, Marel (MARL), 4.409 milljónir, N1 (N1), 3.079 milljónir, Haga (HAGA), 3.042 milljónir og Reita fasteignafélags (REITIR), 1.872 milljónir.

·         Úrvalsvísitalan (OMXI8) lækkaði um 4,6% á milli mánaða og stendur nú í 1.695 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina, 25,2% (24,8% á árinu), Landsbankinn með 19,9% (23,2% á árinu), og Kvika banki með 18,5% (18,1% á árinu).

·         Í lok júlí voru hlutabréf 20 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 966 milljörðum króna (samanborið við 990 milljarða í júní).

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 82 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 3,9 milljarða veltu á dag. Þetta er 49% lækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í júní námu 7,6 milljörðum á dag), en 41% lækkun frá fyrra ári (viðskipti í júlí 2015 námu 6,6 milljörðum á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 70,9 milljörðum, viðskipti með íbúðabréf námu 4,1 milljarði, og viðskipti með bankabréf námu 3,6 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 20 0205, 15,6 milljarðar, RIKS 21 0414, 13,1 milljarður, RIKB 25 0612, 11,1 milljarður, RIKB 22 1026, 11,0 milljarðar og RIKB 31 0124, 7,7 milljarðar.

·         Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn með mestu hlutdeildina 24,7% (21,0% á árinu), Arion banki  með 18,6% (17,6% á árinu) og Kvika banki með 15,8% (21,2% á árinu).

·         Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) lækkaði um 0,07% í júlí og stendur í 1.175 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 1,83% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) lækkaði um 0,80%.               

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,600 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 9.6 billjón Bandaríkjadala. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. 

         Fjölmiðlar:
         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         868 9836


Attachments

2016_0802_Viðskiptayfirlit fyrir júlí 2016.pdf