Í júlí flutti félagið 491 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 18% fleiri en í júlí á síðasta ári. Farþegafjöldinn er sá mesti í einum mánuði frá stofnun félagsins. Sætanýtingin var 87,7% samanborið við 88,9 % í júlí í fyrra. Framboðsaukning á milli ára nam 22%.
Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 35 þúsund í júlí. Framboð félagsins jókst um 14% samanborið við 2015. Sætanýting nam 71,6% og lækkaði um 5,9 prósentustig á milli ára. Skýrist það að mestu af nýjum áfangastað á Grænlandi sem enn er verið að skapa markað fyrir. Fjöldi seldra blokktíma í leiguflugi var sá sami og á síðasta ári. Fraktflutningar jukust um 1% frá því á síðasta ári. Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins jókst um 7% á milli ára. Herbergjanýting var 90,8% samanborið við 90,4% í júlí í fyrra.
MILLILANDAFLUG | JÚL 16 | JÚL 15 | BR. (%) | ÁTÞ 16 | ÁTÞ 15 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 491.007 | 414.678 | 18% | 2.040.371 | 1.714.712 | 19% |
Sætanýting | 87,7% | 88,9% | -1,3 %-stig | 82,1% | 82,9% | -0,8 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 1.697,0 | 1.395,6 | 22% | 7.519,6 | 6.180,6 | 22% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | JÚL 16 | JÚL 15 | BR. (%) | ÁTÞ 16 | ÁTÞ 15 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 35.016 | 33.492 | 5% | 178.737 | 171.473 | 4% |
Sætanýting | 71,6% | 77,6% | -5,9 %-stig | 71,6% | 73,3% | -1,7 p%-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 22,8 | 20,1 | 14% | 90,6 | 84,7 | 7% |
LEIGUFLUG | JÚL 16 | JÚL 15 | BR. (%) | ÁTÞ 16 | ÁTÞ 15 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 100,0% | 100,0% | 0,0 %-stig | 100,0% | 100,0% | 0,0 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.169 | 2.180 | 0% | 13.890 | 13.235 | 5% |
FRAKTFLUTNINGAR | JÚL 16 | JÚL 15 | BR. (%) | ÁTÞ 16 | ÁTÞ 15 | BR. (%) |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 8.428 | 8.349 | 1% | 61.794 | 57.460 | 8% |
HÓTEL | JÚL 16 | JÚL 15 | BR. (%) | ÁTÞ 16 | ÁTÞ 15 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 45.647 | 42.842 | 7% | 201.929 | 192.939 | 5% |
Seldar gistinætur | 41.469 | 38.743 | 7% | 163.134 | 153.105 | 7% |
Herbergjanýting | 90,8% | 90,4% | 0,4 %-stig | 80,8% | 79,4% | 1,4 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010