N1 hf: Birting uppgjörs 2. ársfjórðungs 2016 þann 23.ágúst 2016


N1 birtir uppgjör sitt fyrir 2. ársfjórðung 2016 eftir lokun markaða þriðjudaginn 23. ágúst næstkomandi.

Opinn kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 24. ágúst 2016 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 - 14 Kópavogi 3. hæð. Eggert Kristófersson forstjóri N1 mun kynna afkomu félagsins og svara spurningum.

Fundurinn hefst kl. 08:30. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 08:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu N1: www.n1.is/fjarfestatengsl