Birting uppgjörs annars ársfjórðungs 2016 og kynningarfundur


Vátryggingafélag Íslands hf. mun birta uppgjör annars ársfjórðungs ársins 2016, fimmtudaginn 25. ágúst nk. eftir lokun markaðar.

Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins verður haldinn föstudaginn 26. ágúst nk., kl. 08:30 í höfuðstöðvum VÍS, Ármúla 3, 5. hæð. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti frá 08:15.

Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri, mun kynna afkomuna og svara spurningum.

Að fundi loknum verður hægt að nálgast kynningarefni vegna fundarins á vefsíðu félagsins: http://vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestar/