Í viku 33 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.057.198 eigin hluti að kaupverði 12.072.162 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
15.08.2016 | 13:30 | 19.066 | 11,32 | 215.827 |
16.08.2016 | 14:27 | 432.610 | 11,45 | 4.953.385 |
17.08.2016 | 09:31 | 605.522 | 11,40 | 6.902.951 |
Samtals | 1.057.198 | 12.072.162 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. júní 2016.
Sjóvá átti 17.254.260 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 18.311.458 eigin hluti eða sem nemur 1,17% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 8.395.685 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,54% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 96.531.938 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hluta eða sem nemur 1,6% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000