REYKJAVÍK - 24. ágúst 2016 - Nýherji kynnti í dag uppgjör annars ársfjórðungs og fyrri árshelmings 2016
Helstu upplýsingar:
- Sala á vöru og þjónustu nam 3.794 mkr á öðrum ársfjórðungi (12% tekjuvöxtur frá F2 2015) og 7.126 mkr á fyrri árshelmingi (7,2% tekjuvöxtur frá 1H 2015) [F2 2015: 3.386 mkr, 1H 2015: 6.649 mkr]
- Framlegð nam 931 mkr (24,5%) á öðrum ársfjórðungi og 1.816 mkr (25,5%) á fyrri árshelming 2016 [F2 2015: 830 mkr (24,5%), 1H 2015: 1.637 mkr (24,6%)]
- EBITDA nam 259 mkr (6,8%) á öðrum ársfjórðungi og 439 mkr á fyrri árshelmingi [F2 2015: 227 mkr (6,7%), 1H 2015: 452 mkr (6,8%)]
- Heildarhagnaður á öðrum ársfjórðungi var 73 mkr og 111 mkr á fyrri árshelmingi [F2 2015: 69 mkr, 1H 2015: 111 mkr]
- Eiginfjárhlutfall 30,8% í lok ársfjórðungs en var 29,5% í lok síðasta ársfjórðungs
- Nýherji hf. hefur ráðið AGC Partners LLC til að styðja við undirbúning á mögulegu söluferli á Tempo ehf.
Finnur Oddsson, forstjóri:
„Afkoma Nýherjasamstæðunnar batnaði á öðrum ársfjórðungi miðað við fyrsta fjórðung þessa árs, en fyrri helmingur ársins markast af kostnaðarhækkunum vegna kjarasamninga. Heildarhagnaður samstæðunnar er 73 mkr á öðrum ársfjórðungi og 111 mkr fyrstu 6 mánuði ársins, sem er sambærilegt við fyrri árshelming 2015.
Rekstur samstæðunnar gekk almennt ágætlega, sérstaklega hefur verið góður gangur í hugbúnaðartengdri starfsemi, bæði hjá Nýherja og dótturfélögum. Tekjur Tempo jukust um tæplega 40% (í USD) og viðskiptavinum fjölgar áfram hratt. Til að styðja við þessa þróun höfum við lagt aukna áherslu á erlenda starfsemi Tempo með fjölgun starfsfólks í Montréal og opnun starfsstöðvar í San Francisco. Hjá TM Software hækkuðu tekjur um fjórðung, en mjög góð eftirspurn er eftir lausnum á öllum sérsviðum félagsins. Tekjur Applicon í Svíþjóð hafa að sama skapi aukist, afkoma er góð og unnið að stórum og spennandi verkefnum, sérstaklega á sviði bankalausna.
Góður vöxtur hefur verið í sölu hugbúnaðarlausna hjá Nýherja, móðurfélagi, en aukin áhersla á þann þátt starfsemi okkar skilað því m.a. að Nýherji var valinn samstarfsaðili ársins af Microsoft í fyrsta skipti. Sala á tölvum og tengdum búnaði gekk vel, sérstaklega í hljóð- og myndlausnum og nýjum hýsingarlausnum, sem Nýherji býður í samstarfi við Verne, hefur verið afar vel tekið.
Yfir það heila erum við nokkuð sátt við niðurstöðuna eftir ögrandi fyrsta fjórðung ársins. Verkefnastaða er góð, afar áhugaverð tækifæri í starfsemi dótturfélaga erlendis og horfur í rekstri samstæðunnar því ágætar. Kostnaðarhækkanir vegna kjarasamninga í upphafi árs verða þó áfram eitt stærsta viðfangsefnið á móðurfélagi Nýherja og verður áfram horft til hagræðingar eins og þörf krefur.“
Nánari upplýsingar
Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is.
Sjá viðhengi.