Sjóvá-Almennar tryggingar hf. - Árshlutauppgjör


Hagnaður 709 m.kr. á fyrri árshelmingi

Hagnaður 286 m.kr. á öðrum ársfjórðungi

  • Afkoma af vátryggingastarfsemi 123 m.kr.
  • Afkoma af fjárfestingarstarfsemi 335 m.kr.
  • Ávöxtun eignasafns félagsins 1,7%
  • Ávöxtun skráðra verðbréfa var slök en jákvæð gengisbreyting óskráðra hlutabréfa nam 242 m.kr. og jákvæð gengisbreyting fasteignafélaga og sjóða 285 m.kr.

Hermann Björnsson, forstjóri:
„Í upphafi árs birti Sjóvá horfur fyrir árið, að samsett hlutfall yrði á bilinu 98 til 100% og að afkoma fyrir skatta yrði 2 til 2,5 milljarðar. Nú þegar samsett hlutfall fyrir fyrstu 6 mánuði ársins nemur 104% er ósennilegt að uppgefnar horfur náist þó reikna megi með því að hlutfallið haldi áfram að færast nær 100% í lok árs. Skýringa er fyrst og fremst að leita í því að árangur þeirra aðgerða sem gripið hefur verið til skilar sér á lengri tíma ásamt því að tjónatíðnin er enn há. Við þessar kringumstæður hafa fjárfestingartekjur skapað megnið af þeim hagnaði sem verður til. Þróun markaða til áramóta mun ráða miklu um endanlega niðurstöðu“, segir Hermann.

 

Helstu niðurstöður og lykiltölur

 

  2F 2016 2F 2015 % 6M 2016 6M 2015 %
Iðgjöld tímabilsins 3.691 3.499 5% 7.275 6.958 5%
Eigin iðgjöld 3.482 3.312 5% 6.885 6.603 4%
Fjárfestingartekjur 578 963 -40% 1.287 2.003 -36%
Þar af fjárfestingartekjur af vátryggingaskuld 202 243 -17% 401 448 -11%
Heildartekjur 4.064 4.273 -5% 8.187 8.614 -5%
Tjón tímabilsins -2.723 -2.529 8% -5.415 -5.145 5%
Eigin tjón -2.684 -2.514 7% -5.419 -5.134 6%
Rekstrarkostnaður -922 -873 6% -1.914 -1.770 8%
Afskrift óefnislegra eigna 0 -116   0 -231  
Heildargjöld -3.606 -3.503 3% -7.333 -7.135 3%
Afkoma fyrir skatta 458 770 -40% 854 1.478 -42%
Afkoma eftir skatta 286 756 -62% 709 1.380 -49%
Tjónahlutfall 74% 72%   74% 74%  
 
Endurtryggingahlutfall 4% 5%   5% 5%  
Kostnaðarhlutfall 24% 24%   25% 24%  
Samsett hlutfall 102% 101%   104% 103%  
Ávöxtun eigin fjár 7% 30%   9% 24%  
Hagnaður á hlut 0,18 0,47   0,46 0,87  

 

   6M 2016 2015
Verðbréf 34.403  33.785 
Viðskiptakröfur 5.827  4.078 
Handbært fé 1.211  1.385 
Heildareignir 43.413  41.435 
Eigið fé 16.197  16.291 
Eiginfjárhlutfall 37,3%  34,3% 
Gjaldþolshlutfall SII 1,93  1,49 

Fjárhæðir eru í milljónum króna

 

Kynningarfundur 26. ágúst kl. 8:30
Sjóvá býður til opins kynningarfundar um afkomu félagsins á öðrum ársfjórðungi 2016 föstudaginn 26. ágúst kl. 8:30 í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð. Hermann Björnsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum. Hægt er að fylgjast með beinni útsendingu frá fundinum á vefslóðinni www.sjova.is/afkomukynningar

Nánari upplýsingar
Allar nánari upplýsingar veitir Þórður Pálsson í síma 440-2000 eða fjarfestar@sjova.is.


Attachments

Sjóvá Fréttatilkynning - Afkoma 6M 2016.pdf Sjóvá Árshlutareikningur - 30.06.2016.pdf