Reykjavík, 2016-09-02 12:11 CEST (GLOBE NEWSWIRE) -- Föstudaginn 9. september 2016 verða boðnir til sölu víxlar til tæplega 7 mánaða fyrir allt að 1.360 milljónir króna í flokki Orkuveitu Reykjavíkur (OR) OR300317 og skuldabréf fyrir allt að 4,5 milljarða króna í tveimur flokkum, OR090524 og OR090546, sem eru verðtryggð með jöfnum greiðslum til tæplega 8 og 30 ára.
Fjárfestingarbankasvið Arion banka hefur umsjón með útboðinu og kynnir það fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður lokað og með hollenskri aðferð, þar sem öll skuldabréf og víxlar verða seld á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið verður í hverjum flokki. OR áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er að hluta eða í heild eða hafna öllum.
Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega næsta virka dag eftir útboð.
Nánari upplýsingar:
Birgir Guðfinnsson, markaðsviðskiptum fjárfestingarbankasviðs Arion banka hf.
Sími 444-7337
Netfang verdbrefamidlun@arionbanki.is
Brynja Kolbrún Pétursdóttir forstöðumaður Fjárstýringar og greininga OR
Sími 516-6100
Netfang brynja.kolbrun.petursdottir@or.is
Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Fjármála OR
Sími 516-6100
Netfang ingvar.stefansson@or.is