Reglubundin tilkynning um kaup VÍS á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun. Kaupum skv. endurkaupaáætlun lokið


 

Í 36. viku 2016 keypti Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) 1.362.395 eigin hluti fyrir kr. 11.730.887 eins og hér segir:
           
5.9.2016 10:22 70.000 8,60 602.000 71.646.631
6.9.2016 15:10 1.155.814 8,61 9.951.559 72.802.445
7.9.2016 14:04 136.581 8,62 1.177.328 72.939.026
Samtals   1.362.395   11.730.887  
           
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 25. ágúst 2016, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 25. ágúst 2016.
 
Endurkaupum lokið
 
Vísað er til tilkynningar Vátryggingafélags Íslands hf. til Aðalmarkaðar um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess, dags. 25. ágúst 2016. Eins og greint var frá í þeirri tilkynningu er sú endurkaupaáætlun sem lauk í dag fimmta endurkaupaáætlun félagsins frá því aðalfundur 2014 veitti slíka heimild.
 
Aðalfundur 12. mars 2015 veitti stjórn heimild til að framkvæma endurkaupaáætlun þess efnis að kaupa allt að 10% af hlutum félagsins á 18 mánuðum.


Þann 30. apríl 2015 ákvað stjórn VÍS að kaupa mætti eigin hluti fyrir allt að 1.000.000.000 kr. að markaðsvirði. Því var lokið sjö mánuðum síðar. Þá höfðu 4,88% af útgefnu hlutafé félagsins verið keypt eða tæplega helmingur þess sem aðalfundur hafði heimilað.


Þann 24. apríl 2016 ákvað stjórn VÍS að kaupa mætti eigin hluti fyrir allt að 70.000.000 kr. Að markaðsvirði. Því var lokið rúmum þremur mánuðum síðar. Þá höfðu 3,05% af útgefnu hlutafé verið keypt til viðbótar.


Þann 8. ágúst 2016 ákvað stjórn VÍS að halda endurkaupum áfram en heimildin gildir til 12. september. Samkvæmt þeirri endurkaupaáætlun var áætlað að kaupa að hámarki hluti að nafnverði kr. 12.500.000 eða sem samsvarar 0,55% af útgefnu hlutafé félagsins. Fjárhæð endurkaupanna skyldi þó ekki verða hærri en kr. 100.000.000. Reglubundnar tilkynningar til markaðarins um kaup VÍS á eigin bréfum hafa upplýst um framgang kaupanna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar þessarar er nú lokið. Samtals hafa verið keyptir 2.939.026 hlutir í félaginu sem samsvarar 0,13 % af útgefnu hlutafé. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 24.660.940.  VÍS á nú samtals 3,18% af heildarhlutafé félagsins sem er 2.296.436.567.


Endurkaupáætlunin var framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.


Nánari upplýsingar veitir Jakob Sigurðsson forstjóri í síma 560-5000 og gegnum netfangið: fjarfestatengsl@vis.is.