Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 36 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 65.601 eigin hluti að kaupverði 852.852 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
07.09.2016 14:10             8.403 13,05 109.659
08.09.2016 12:35              19.066                13,00       247.858
08.09.2016 14:07 19.066 13,00 247.858
09.09.2016 09:40 19.066 12,98 247.477
Samtals   65.601   852.852

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. júní 2016.

Sjóvá átti 21.062.145 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 21.127.746 eigin hluti eða sem nemur 1,35% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 11.211.973 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,72% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 129.663.644 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hluta eða sem nemur 1,6% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

 

Nánari upplýsingar veitir:

Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000