Í viku 37 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.043.654 eigin hluti að kaupverði 13.569.218 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
13.09.2016 | 09:30 | 19.066 | 13,00 | 247.858 |
13.09.2016 | 09:32 | 400.000 | 13,00 | 5.200.000 |
14.09.2016 | 14:11 | 605.522 | 13,00 | 7.871.786 |
16.09.2016 | 14:01 | 19.066 | 13,09 | 249.574 |
Samtals | 1.043.654 | 13.569.218 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. júní 2016.
Sjóvá átti 21.127.746 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 22.171.400 eigin hluti eða sem nemur 1,42% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 12.255.627 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,78% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 143.232.862 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 25.000.000 hluta eða sem nemur 1,6% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin er í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni verður lokið áður.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000