Sjóvá: Lindarhvoll ehf. selur 13,93% hlut í Sjóvá


Samkvæmt upplýsingum í frétt frá Landsbankanum lauk útboði á eignarhlut Ríkissjóðs Íslands í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. kl. 8.30 í dag, mánudaginn 26. september 2016. Markaðsviðskipti Landsbanka Íslands höfðu umsjón með útboðinu.

Fjárfestar óskuðu eftir því að kaupa 286.051.111 hluta í Sjóvá, eða sem nemur 18,3% af heildarhlutafé í Sjóvá.

Sölugengi í útboðinu var ákveðið 12,91 krónur á hlut. Heildarnafnverð samþykktra tilboða eftir skerðingu var 217.655.980 hlutir, eða sem samsvarar 13,93% af heildarhlutafé Sjóvá. Heildarsöluverðmæti samþykktra tilboða eftir skerðingu er því rúmlega 2,8 ma.kr. Að útboðinu loknu á Ríkissjóður ekki eignarhlut í Sjóvá.

Öll samþykkt tilboð voru boðin fjárfestum á sama gengi, þar sem lægsta samþykkta gengi réð sölugenginu. Samþykkt tilboð sem bárust á sama gengi og sölugengi voru skert sem nam umframeftirspurn, en þó ekki niður fyrir 1.250.000 hluti að nafnverði sem var lágmarksfjöldi hluta sem hægt var að bjóða í útboðinu. Tilboðum sem bárust á lægra gengi en sölugengi var hafnað.

Viðskiptadagur vegna útboðsins er 26. september 2016 og greiðslu- og afhendingardagur vegna viðskiptanna er miðvikudagurinn 28. september 2016.

Útboðið fór fram í samræmi við útboðsskilmála sem birtir voru á vefsíðu Landsbankans, www.landsbankinn.is þann 23. september 2016.

 

Nánari upplýsingar veita:

Árni Maríasson, forstöðumaður Markaðsviðskipta Landsbankans, s. 410-7335/863-9998

Arnar Arnarsson, Markaðsviðskipti Landsbankans, s. 410-7336/821-2083