Í viku 39 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 2.422.088 eigin hluti að kaupverði 31.275.211 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
26.09.2016 | 13:53 | 605.522 | 12,94 | 7.835.455 |
27.09.2016 | 12:10 | 38.132 | 12,92 | 492.665 |
27.09.2016 | 13:19 | 19.066 | 12,92 | 246.333 |
27.09.2016 | 14:13 | 548.324 | 12,92 | 7.084.346 |
29.09.2016 | 09:48 | 605.522 | 12,91 | 7.817.289 |
30.09.2016 | 09:32 | 605.522 | 12,88 | 7.799.123 |
Samtals | 2.422.088 | 31.275.211 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 9. júní 2016. Samkvæmt áætluninni máttu endurkaup félagsins á eigin bréfum nema að hámarki 25.000.000 hlutum eða sem nemur 1,60% af útgefnum hlutum í félaginu, þó ekki meira en 300.000.000 kr. að kaupverði. Endurkaupaáætlunin var í gildi til 30. september 2016 nema ef kaupum samkvæmt henni yrði lokið áður.
Gildistími endurkaupaáætlunarinnar er nú liðinn. Samtals hafa verið keyptir 14.777.110 hlutir í félaginu sem samsvarar 0,95% af útgefnu hlutafé. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr. 175.807.779. Sjóvá á samtals 1,58% af heildarhlutafé félagsins eða samtals 24.692.883 hluti.
Endurkaupaáætlunin var framkvæmd í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000