Síminn hf. - Viðskipti með eigin bréf 30. september 2016


Síminn hf. hefur í dag selt eigin bréf, samtals 37.201.746 hluti að fjárhæð 93.677.717 kr. Um er að ræða sölu vegna kaupréttarsamninga sem gerðir voru við starfsmenn samstæðunnar að Mílu ehf. undanskilinni áður en félagið fór á markað. Gengi í samningunum er 2,5181. Samningarnir voru gerðir á grundvelli kaupréttaráætlunar sem hluthafafundur félagsins samþykkti þann 8. september 2015.  Alls nýttu 163 starfsmenn sér kaupréttinn.

Sjá nánar í meðfylgjandi viðhengi. 


Attachments

Vidskipti-med-eigin-bref_Síminn.pdf