Sjóvá - Tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunar


Aðalfundur Sjóvá-Almennra trygginga hf. sem haldinn var 11. mars 2016 veitti stjórn félagsins heimild til að kaupa allt að 156.243.676 eigin hluti í félaginu, en það jafngildir um 10% af útgefnu hlutafé félagsins. Heimildina skal einungis nýta í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup á eigin bréfum.

Sami aðalfundur veitti stjórn Sjóvá-Almennra trygginga hf. einnig heimild til þess að kaupa hluti í félaginu með framkvæmd endurkaupaáætlunar að hámarki 156.243.676 hlutir, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 2.000 milljónir króna. Heimildin gildir fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars 2017.

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. tilkynntu um framkvæmd endurkaupaáætlunar þann 9. júní 2016. Endurkaupaáætlunin var í gildi til 30. september 2016 og keypti félagið samkvæmt áætluninni samtals 14.777.110 eigin hluti að kaupverði 175.807.779 krónur, eða sem nemur 0,95% af útgefnu hlutafé í Sjóvá-Almennum tryggingum hf.

Sjóvá-Almennar tryggingar hf. hafa á grundvelli fyrrgreindra samþykkta og að teknu tilliti til kaupa á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætluninni sem lauk þann 30. september 2016 tekið ákvörðun um frekari kaup á eigin hlutum samkvæmt endurkaupaáætlun í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé félagsins. Endurkaupin munu að hámarki nema 131.550.793 hlutum eða 8,42% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó þannig að heildarkaupverð verði ekki hærra en 1.700 milljónir króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2017 en þó aldrei lengur en til 11. mars 2017 nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hf. mun hafa umsjón með framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005.

Kaup samkvæmt endurkaupaáætluninni verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags munu að hámarki nema 3.757.231 hlut eða sem nemur 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins á aðalmarkaði Kauphallar Íslands hf.  í september 2016. Endurgjald fyrir keypta hluti skal ekki vera hærra en sem nemur verði síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboði í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem er hærra.

Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunarinnar verða tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin fara fram.

Nánari upplýsingar veitir:

Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000