Í viku 40 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.019.066 eigin hluti að kaupverði 13.127.286 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
5.10.2016 | 09:30 | 1.000.000 | 12,88 | 12.880.000 |
6.10.2016 | 10:01 | 19.066 | 12,97 | 247.286 |
Samtals | 1.019.066 | 13.127.286 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016.
Sjóvá átti 24.692.883 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 25.711.949 eigin hluti eða sem nemur 1,65% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 1.019.066 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,07% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 13.127.286 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 131.550.793 hlutum eða sem nemur 8,42% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars 2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000