Í viku 41 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 2.895.082 eigin hluti að kaupverði 38.188.522 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
10.10.2016 | 10:14 | 19.066 | 13,05 | 248.811 |
11.10.2016 | 14:28 | 1.000.000 | 13,24 | 13.240.000 |
11.10.2016 | 15:29 | 85.000 | 13,19 | 1.121.150 |
12.10.2016 | 15:02 | 42.016 | 13,19 | 554.191 |
13.10.2016 | 13:52 | 19.066 | 13,19 | 251.481 |
13.10.2016 | 13:52 | 980.934 | 13,19 | 12.938.519 |
13.10.2016 | 15:00 | 749.000 | 13,13 | 9.843.370 |
Samtals | 2.895.082 | 38.188.522 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016.
Sjóvá átti 25.711.949 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 28.607.031 eigin hluti eða sem nemur 1,83% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 3.914.148 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,25% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 51.315.808 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 131.550.793 hlutum eða sem nemur 8,42% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars 2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000