Tryggingamiðstöðin hf.

Uppgjör þriðja ársfjórðungs 2016 verður birt þann 27. október 2016 - kynningarfundur 28. október kl. 8:30.


TM býður til kynningarfundar á afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi föstudaginn 28. október kl. 8:30. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM að Síðumúla 24, 4. hæð.

Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins www.tm.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar.

Hægt er að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni: https://global.gotomeeting.com/join/681887709