Birting uppgjörs þriðja ársfjórðungs þann 26. október og kynningarfundur að morgni 27. október.


Vátryggingafélag Íslands hf. mun birta uppgjör þriðja ársfjórðungs ársins 2016, miðvikudaginn 26. október næstkomandi eftir lokun markaðar.

Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins á þriðja ársfjórðungi og afkomuna það sem af er ári verður haldinn morguninn eftir, þann 27. október í höfuðstöðvum VÍS, Ármúla 3, 5. hæð, kl. 08:30. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti frá 08:15.

Jakob Sigurðsson, forstjóri, mun kynna afkomuna og svara spurningum.

Að fundi loknum verður hægt að nálgast kynningarefni vegna fundarins á vefsíðu félagsins:

http://vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestar/