Í viku 43 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 4.000.000 eigin hluti að kaupverði 53.290.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
24.10.2016 | 13:29 | 11.308 | 12,89 | 145.760 |
24.10.2016 | 14.44 | 988.692 | 12,89 | 12.744.240 |
28.10.2016 | 09:38 | 1.000.000 | 13,50 | 13.500.000 |
28.10.2016 | 10:50 | 1.000.000 | 13,50 | 13.500.000 |
28.10.2016 | 11:27 | 1.000.000 | 13,40 | 13.400.000 |
Samtals | 4.000.000 | 53.290.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016.
Sjóvá átti 32.625.361 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 36.625.361 eigin hluti eða sem nemur 2,34% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 11.932.478 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,76% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 156.842.456 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 131.550.793 hlutum eða sem nemur 8,42% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars 2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000