Hagar hf. hafa endurnýjað samning við Íslandsbanka um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af Högum hf. sem skráð eru á Nasdaq OMX Iceland. Eldri samningur er frá 2011. Tilgangur þessa samnings er að efla viðskipti með hlutabréf félagsins í Nasdaq OMX Iceland („Kauphöllin“) í því skyni að seljanleiki hlutabréfa félagsins aukist, markaðsverð skapist og verðmyndun hlutabréfanna verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.
Samningurinn kveður á um að Íslandsbanki skuli dag hvern leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar.
Fjárhæð kaup- og sölutilboða, að nafnvirði, skal vera að lágmarki í samræmi við töflu A þar sem gengi félagsins á markaði stýrir fjárhæð tilboða.
TAFLA A
Gengi | Nafnverð |
1 - 25 | 1.000.000 |
25,1 - 35 | 800.000 |
35,1 - 45 | 600.000 |
45,1 - 50 | 500.000 |
50,1 - 65 | 400.000 |
65,1 - 85 | 300.000 |
85,1 - 125 | 200.000 |
125,1 - 165 | 150.000 |
165,1 - 250 | 100.000 |
Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Íslandsbanki tryggir að verðbil milli kaup- og sölutilboða sem sett eru fram í viðskiptavakt nemi að hámarki 1,5% og að frávik þeirra frá síðasta viðskiptaverði sama dags sé ekki meira en 3%. Samningurinn er ótímabundinn og er uppsegjanlegur af beggja hálfu með 14 daga fyrirvara.