Í viku 44 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 3.111.336 eigin hluti að kaupverði 44.018.664 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
31.10.2016 | 12:45 | 16.066 | 13,53 | 216.561 |
31.10.2016 | 12:57 | 19.066 | 13,53 | 257.963 |
1.11.2016 | 12.34 | 19.066 | 13,56 | 258.535 |
1.11.2016 | 12:54 | 19.066 | 13,56 | 258.535 |
1.11.2016 | 13:41 | 19.066 | 13,56 | 258.535 |
1.11.2016 | 14:50 | 19.066 | 13,56 | 258.535 |
2.11.2016 | 15:14 | 1.000.000 | 14,06 | 14.060.000 |
3.11.2016 | 09:41 | 1.000.000 | 14,10 | 14.100.000 |
4.11.2016 | 13:56 | 1.000.000 | 14,35 | 14.350.000 |
Samtals | 3.111.336 | 44.018.664 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016.
Sjóvá átti 36.625.361 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 39.736.697 eigin hluti eða sem nemur 2,54% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 15.043.814 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,96% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 200.861.120 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 131.550.793 hlutum eða sem nemur 8,42% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars 2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000