Í viku 45 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 42.520.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
8.11.2016 | 14:17 | 583.902 | 14,20 | 8.291.408 |
8.11.2016 | 14:19 | 416.098 | 14,20 | 5.908.592 |
9.11.2016 | 13:51 | 1.000.000 | 14,15 | 14.150.000 |
9.11.2016 | 10:33 | 1.000.000 | 14,17 | 14.170.000 |
Samtals | 3.000.000 | 42.520.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016.
Sjóvá átti 39.736.697 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 42.736.697 eigin hluti eða sem nemur 2,74% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 18.043.814 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,15% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 243.381.120 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 131.550.793 hlutum eða sem nemur 8,42% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars 2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000