Hagar hf. tilkynntu mánudaginn 7. nóvember 2016 að félagið hefði lagt fram skuldbindandi tilboð í allt hlutafé Lyfju hf. Eigandi Lyfju hf. er Ríkissjóður Íslands. Tilboðið var lagt fram með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Félagið mun hefja viðræður um kaup á félaginu á grundvelli tilboðsins, en á þessari stundu er óljóst um niðurstöðu þeirra viðræðna og þeirra fyrirvara sem tilboðið fól í sér.