Í viku 46 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 4.019.066 eigin hluti að kaupverði 57.565.885 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
15.11.2016 | 14:42:00 | 1.000.000 | 14,56 | 14.560.000 |
16.11.2016 | 09:30:04 | 1.000.000 | 14,27 | 14.270.000 |
16.11.2016 | 09:30:50 | 1.000.000 | 14,26 | 14.260.000 |
16.11.2016 | 09:31:13 | 1.000.000 | 14,20 | 14.200.000 |
17.11.2016 | 10:07:48 | 19.066 | 14,47 | 275.885 |
Samtals | 4.019.066 | 57.565.885 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016.
Sjóvá átti 42.736.697 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 46.755.763 eigin hluti eða sem nemur 2,99% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 22.062.880 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,41% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 300.947.005 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 131.550.793 hlutum eða sem nemur 8,42% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars 2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000