Vátryggingafélagi Íslands hf. hefur borist tilkynning frá Benedikt Gíslasyni stjórnarmanni um úrsögn úr stjórn félagsins frá og með deginum í dag, í kjölfar þess að hann var kosinn í stjórn Kaupþings ehf. fyrr í dag.
Eftirfarandi skipa þá stjórn félagsins:
Aðalmenn
Herdís Dröfn Fjeldsted, stjórnarformaður
Jostein Sørvoll, varaformaður
Helga Hlín Hákonarsdóttir
Reynir Finndal Grétarsson
Varamenn
Andri Gunnarsson
Soffía Lárúsdóttir
Stjórn félagsins er ákvörðunarbær, sbr. 71. gr. laga um hlutafélög.