Í viku 47 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 3.024.066 eigin hluti að kaupverði 45.076.308 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
21.11.2016 | 12:54:44 | 19.066 | 14,82 | 282.558 |
22.11.2016 | 09:40:38 | 1.000.000 | 14,82 | 14.820.000 |
22.11.2016 | 10:00:30 | 5.000 | 14,75 | 73.750 |
24.11.2016 | 15:20:16 | 300.000 | 15,05 | 4.515.000 |
24.11.2016 | 15:20:25 | 700.000 | 15,05 | 10.535.000 |
25.11.2016 | 09:30:02 | 999.999 | 14,85 | 14.849.985 |
25.11.2016 | 09:30:02 | 1 | 14,85 | 15 |
Samtals | 3.024.066 | 45.076.308 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016.
Sjóvá átti 46.755.763 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 49.779.829 eigin hluti eða sem nemur 3,19% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 25.086.946 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,61% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 346.023.313 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 131.550.793 hlutum eða sem nemur 8,42% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars 2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000