Viðskiptayfirlit nóvember 2016 – Nasdaq Iceland


Reykjavík, 1. desember, 2016 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. 

Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir nóvember 2016 eru eftirfarandi:   

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf í nóvember námu 40.047 milljónum eða 1.820 milljónum á dag. Það er 32% lækkun frá fyrri mánuði, en í október námu viðskipti með hlutabréf 2.684 milljónum á dag.  Þetta er 19% lækkun á milli ára (viðskipti í nóvember 2015 námu 2.251 milljón á dag).

·         Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group (ICEAIR), 6.638 milljónir, Marel (MARL), 4.823 milljónir, Eimskipafélags Íslands (EIM), 4.437 milljónir, Haga (HAGA), 3.860 milljónir,  og N1 (N1), 3.241 milljón.

·         Úrvalsvísitalan (OMXI8) lækkaði um 0,3% á milli mánaða og stendur nú í 1.712 stigum.

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina, 23,8% (24,0% á árinu), Íslandsbanki með 19,3% (17,3% á árinu), og Landsbankinn með 17,1% (22,2% á árinu). 

·         Í lok nóvember voru hlutabréf 20 félaga skráð á Aðalmarkaði og Nasdaq First North á Íslandi. Nemur heildarmarkaðsvirði skráðra félaga 977 milljörðum króna (samanborið við 979 milljarða í október).

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 139 milljörðum í síðasta mánuði sem samsvarar 6,3 milljarða veltu á dag. Þetta er 19% hækkun frá fyrri mánuði (viðskipti í október námu 5,3 milljörðum á dag), en 43% lækkun frá fyrra ári (viðskipti í nóvember 2015 námu 11,1 milljarði á dag).

·         Alls námu viðskipti með ríkisbréf 118,1 milljarði, viðskipti með íbúðabréf námu 5,8 milljörðum, og viðskipti með bankabréf námu 12,0 milljörðum. Mest voru viðskipti með RIKB 22 1026, 22,5 milljarðar, RIKB 31 0124, 20,4 milljarðar, RIKB 25 0612, 17,7 milljarðar, RIKB 20 0205, 15,8 milljarðar og RIKH 18 1009, 10,0 milljarðar.

·         Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn með mestu hlutdeildina 21,9% (20,2% á árinu), Íslandsbanki með 20,2% (18,6% á árinu) og Kvika banki með 16,8% (20,1% á árinu).

·         Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 0,5% í nóvember og stendur í 1.236 stigum.  Óverðtryggða skuldabréfavísitala Kauphallarinnar (NOMXINOM) hækkaði um 0,3% og sú verðtryggða (NOMXIREAL) hækkaði um 0,5%.                        

Sjá myndir í viðhengi fyrir hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði.

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

# 

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,700 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 10 billjón Bandaríkjadala og um það bil 18,000 viðskiptavina. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/

 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

 

Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. 

         Fjölmiðlar:
         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         8689836

hlutdeild kauphallaraðila skuldabréf nóv hlutdeild kauphallaraðila hlutabréf nóv

Attachments

2016_1201_Viðskiptayfirlit fyrir nóvember 2016.pdf