Í viku 51 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 49.066 eigin hluti að kaupverði 737.490 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
19.12.2016 | 14:25:53 | 19.066 | 15,00 | 285.990 |
21.12.2016 | 09:52:08 | 30.000 | 15,05 | 451.500 |
Samtals | 49.066 | 737.490 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016.
Sjóvá átti 55.343.251 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 55.392.317 eigin hluti eða sem nemur 3,55% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 30.699.434 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,96% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 429.597.834 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 131.550.793 hlutum eða sem nemur 8,42% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars 2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000