Arion banki og Landsbankinn með mestu hlutdeild á Nasdaq Iceland 2016


Reykjavík, 5. janúar, 2017 – Nasdaq Iceland (Kauphöllin) (NASDAQ:NDAQ) hefur tekið saman hlutdeild kauphallaraðila í viðskiptum á Aðalmarkaði Kauphallarinnar á síðasta ári.

Á hlutabréfamarkaði var Arion banki með mestu hlutdeildina, 23,8%, Landsbankinn var næstur í röðinni með 22,1% og þar næstur var Íslandsbanki með 17,2% hlutdeild.

Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn með mestu hlutdeildina, 20,17%, en Kvika fylgdi fast í kjölfarið með 20,13% og Íslandsbanki var með þriðju hæstu hlutdeildina, 18,3%.

Á Nasdaq Iceland hafa 14 kauphallaraðilar leyfi til að eiga viðskipti á hlutabréfamarkaði, sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/membership/membership-lists og 12 á skuldabréfamarkaði, sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/membership/fixed-income/fixedincome-memberlist

Upplýsingar um hlutdeild kauphallaraðila á hlutabréfa- og skuldabréfamarkaði má sjá á myndum (og í viðhengdu excel skjali).

#

Um Nasdaq

Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, eftirlits, skráninga, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,700 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 10 billjón Bandaríkjadala og um það bil 18 þúsund viðskiptavina. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu http://business.nasdaq.com/ 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur.

Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland, Nasdaq Riga, Nasdaq Stockholm, Nasdaq Tallinn, Nasdaq Vilnius, Nasdaq Clearing and Nasdaq Broker Services are respectively brand names for the regulated markets of Nasdaq Copenhagen A/S, Nasdaq Helsinki Ltd., Nasdaq Iceland hf., Nasdaq Riga, AS, Nasdaq Stockholm AB, Nasdaq Tallinn AS, AB Nasdaq Vilnius, Nasdaq Clearing AB and Nasdaq Broker Services AB. Nasdaq Nordic represents the common offering by Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland and Nasdaq Stockholm. Nasdaq Baltic represents the common offering by Nasdaq Tallinn, Nasdaq Riga and Nasdaq Vilnius.

 

         Upplýsingar:
         Kristín Jóhanns
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         868 9836

Skuldabref 2016 Hlutabref 2016

Attachments

Hlutd myndir 2016.xlsx 2017_0105_markaðshlutdeild2016_IceMyndir.pdf