Í desember flutti Icelandair 220 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 19% fleiri en í desember á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 24% og sætanýting var 77,2% samanborið við 79,2% í desember 2015. Farþegar Flugfélags Íslands voru tæplega 21 þúsund í desember og fjölgaði um 17% á milli ára. Á árinu 2016 hófst flug til Aberdeen, sem flogið er á Bombardier Q400 vélum Flugfélags Íslands. Til þessa hefur það flug verið meðtalið í flutningatölum Icelandair, en frá og með desember er það fært yfir til Flugfélagsins Íslands og jafnframt hafa tölur ársins í heild verið uppfærðar til samræmis. Í desember jókst framboð Flugfélags Íslands um 59% og skýrist það að langmestu leyti af Aberdeenfluginu. Seldir blokktímar í leiguflugi stóðu í stað á milli ára. Fraktflutningar drógust saman um 3% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 67,9% samanborið við 60,7% í desember í fyrra.
Flutningatölur fyrir árið 2016 liggja nú fyrir. Icelandair hefur aldrei flutt fleiri farþega en á árinu 2016. Þeir voru alls tæplega 3,7 milljónir og fjölgaði um 20% frá fyrra ári. Sætanýting nam 82,2% og lækkaði um 1 prósentustig frá árinu 2015 sem var metár. Heildarfjöldi farþega Flugfélags Íslands var 323 þúsund og jókst um 9% á milli ára. Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 1% og flutt frakt um 5%. Herbergjanýting á hótelum félagsins á árinu 2016 var 81,5% og hefur aldrei verið hærri.
ICELANDAIR | DES 16 | DES 15 | BR. (%) | ÁTÞ 16 | ÁTÞ 15 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 219.937 | 185.216 | 19% | 3.674.461 | 3.074.175 | 20% |
Sætanýting | 77,2% | 79,2% | -2,0 %-stig | 82,2% | 83,2% | -1,0 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 861,2 | 697,0 | 24% | 13.653,3 | 11.083,3 | 23% |
FLUGFÉLAG ÍSLANDS | DES 16 | DES 15 | BR. (%) | ÁTÞ 16 | ÁTÞ 15 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 20.603 | 17.672 | 17% | 322.740 | 296.176 | 9% |
Sætanýting | 58,8% | 70,5% | -11,6 %-stig | 69,3% | 74,4% | -5,1 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 12,4 | 7,8 | 59% | 179,6 | 145,0 | 24% |
LEIGUFLUG | DES 16 | DES 15 | BR. (%) | ÁTÞ 16 | ÁTÞ 15 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 100,0% | 100,0% | 0,0 %-stig | 100,0% | 100,0% | 0,0 %-stig |
Seldir blokktímar | 1.865 | 1.864 | 0% | 23.523 | 23.263 | 1% |
FRAKTFLUTNINGAR | DES 16 | DES 15 | BR. (%) | ÁTÞ 16 | ÁTÞ 15 | BR. (%) |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 8.387 | 8.637 | -3% | 105.379 | 100.497 | 5% |
HÓTEL | DES 16 | DES 15 | BR. (%) | ÁTÞ 16 | ÁTÞ 15 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 27.807 | 24.335 | 14% | 352.214 | 325.941 | 8% |
Seldar gistinætur | 18.886 | 14.779 | 28% | 287.160 | 254.842 | 13% |
Herbergjanýting | 67,9% | 60,7% | 7,2 %-stig | 81,5% | 78,2% | 3,3 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010