Í viku 1 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 1.059.469 eigin hluti að kaupverði 16.359.876 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
2.1.2017 | 12:22:44 | 19.066 | 15,30 | 291.710 |
3.1.2017 | 11:11:46 | 32.000 | 15,30 | 489.600 |
3.1.2017 | 14:11:38 | 8.403 | 15,30 | 128.566 |
6.1.2017 | 11:52:43 | 54.938 | 15,45 | 848.792 |
6.1.2017 | 14:59:38 | 945.062 | 15,45 | 14.601.208 |
Samtals | 1.059.469 | 16.359.876 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016.
Sjóvá átti 56.430.449 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 57.489.918 eigin hluti eða sem nemur 3,68% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 32.797.035 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,10% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 461.633.503 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 131.550.793 hlutum eða sem nemur 8,42% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars 2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000