Reglubundin tilkynning Sjóvá um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


 

Í viku 2 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 3.019.066 eigin hluti að kaupverði 46.341.710 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir: 

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
9.1.2017 09:58:18 1.000.000 15,40 15.400.000
11.1.2017 11:05:13 300.000 15,40 4.620.000
11.1.2017 11:05:26 700.000 15,40 10.780.000
11.1.2017 15:10:09 19.066 15,30 291.710
12.1.2017 14:35:57 1.000.000 15,25 15.250.000
              Samtals   3.019.066   46.341.710

 

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016.

Sjóvá átti 58.095.440 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 61.114.506 eigin hluti eða sem nemur 3,91% af útgefnum hlutum í félaginu.

Sjóvá hefur keypt samtals 35.816.101 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 2,29% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 507.975.213 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 130.945.271 hlutum eða sem nemur 8,38% af útgefnum hlutum í félaginu a.t.t. leiðréttingar sem birt var í frétt 2017-01-10 19:12:57 CEST, en þó má heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars 2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“

 

Nánari upplýsingar veitir:

Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000