Sjóvá-Almennar tryggingar hf. - Afkomuviðvörun


Í upphafi árs 2016 kynnti Sjóvá horfur fyrir árið um afkomu á bilinu 2,0-2,5 ma.kr. og samsett hlutfall á bilinu 98-100%.

Í drögum að uppgjöri fyrir árið 2016 er afkoma félagsins fyrir skatta um 3,0 ma.kr. og samsett hlutfall um 101%. Á fjórða ársfjórðungi er afkoman um 1,2 ma.kr. og samsett hlutfall um 100%. Bætt afkoma fjórðungsins helgast af betri fjárfestingatekjum en ráð var fyrir gert, m.a. vegna endurmats á óskráðum eignum um 300 m.kr.  

Félagið mun birta ársuppgjör fyrir árið 2016 eftir lokun markaða 16. febrúar nk. og býður félagið markaðsaðilum til kynningarfundar kl. 16.15 þann sama dag í fundarsal félagsins í Kringlunni 5, 6. hæð.

Nánari upplýsingar veitir Sigríður Vala Halldórsdóttir, s:844-2136, netfang:fjarfestar@sjova.is