Birting uppgjörs 4. ársfjórðungs 2016


Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung ársins 2016, þriðjudaginn 7. febrúar 2017. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn miðvikudaginn 8. febrúar 2017 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum ásamt öðrum stjórnendum félagsins. Kynningin hefst kl. 08:30 og verður í Víkingasal 4-5. Morgunverður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni:
http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast-next/