- Hagnaður ársins eftir skatta var 89,1 milljón USD samanborið við 111,2 milljónir USD árið 2015.
- EBITDA á 4. ársfjórðungi var 2,5 milljónir USD samanborið við 22,9 milljónir USD á sama ársfjórðungi á síðasta ári.
- Lækkun meðalfargjalda og gengisþróun skýra lakari afkomu á fjórða ársfjórðungi að mestu.
- Heildartekjur jukust um 12% á 4. ársfjórðungi.
- Sterk fjárhagsstaða: 44% eiginfjárhlutfall og handbært fé og markaðsverðbréf námu 250,1 milljón USD í árslok 2016.
- Aukin óvissa í alþjóðlegum flugrekstri.
- EBITDA spá fyrir árið 2017 nemur 140-150 milljónir USD.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
„Rekstrarniðurstaða ársins er sú næstbesta í 80 ára sögu félagsins og starfsemin gekk í heildina mjög vel á árinu, við krefjandi aðstæður. Félagið flutti alls tæplega 3,7 milljónir farþega í millilandaflugi og fjölgaði þeim um 20% frá fyrra ári eða um 600 þúsund farþega. Mikill vöxtur er í hótelstarfseminni og var herbergjanýting mjög góð eða tæp 82%. Innanlandsflugið gekk einnig vel, þar er 9% aukning í farþegafjölda milli ára og ánægjulegt að sjá að erlendir ferðamenn nýta sér innanlandsflugið í auknum mæli. Fraktstarfsemin gekk einnig vel.
Við upphaf árs er hins vegar ljóst að aðstæður í rekstrinum eru mjög krefjandi. Eins og við greindum frá í seinustu viku hefur að undanförnu orðið breyting í bókunarflæði Icelandair til hins verra. Bókanir eru hægari en gert var ráð fyrir og meðalfargjöld á mörkuðum hafa lækkað umfram spár. Á síðustu dögum hafa komið fram upplýsingar um að þetta sé þróun sem almennt á sér stað á alþjóða flugmarkaði. Þróunina má einkum rekja til aukinnar samkeppni en einnig má leiða líkur að því að óvissa vegna breytinga í alþjóða stjórnmálum hafi áhrif á eftirspurn. Verkfall sjómanna á Íslandi hefur neikvæð áhrif á fraktstarfsemi félagsins. Gjaldmiðlar hafa þróast á óhagstæðan hátt miðað við fyrra ár og olíuverð hefur jafnframt hækkað. Horfur í hótelstarfsemi okkar eru góðar.
Við horfum til framtíðar og tökumst á við þessar breyttu aðstæður með langtímahagsmuni félagsins í huga. Þegar hefur verið gripið til aðgerða í rekstri samstæðunnar sem gert er ráð fyrir að skili hagræðingu og auknum tekjum. Meðal aðgerða eru breytingar á uppbyggingu á fargjöldum og vöruframboði Icelandair. Þessar breytingar, sem unnið hefur verið að frá því í haust, eru til að mæta aukinni samkeppni, breyttum aðstæðum á mörkuðum fyrirtækisins og breytingum á neysluvenjum flugfarþega. Markmið breytinganna er að ná til nýrra viðskiptavina auka sýnileika félagsins í leitarvélum gagnvart tilteknum markhópum og breikka tekjugrunn félagsins. Frá síðastliðnu hausti hefur enn fremur verið hert verulega á kostnaðaraðhaldi innan félagsins.
Markmið félagsins er að aðgerðir á tekju- og gjaldahlið muni skila bættri afkomu að fjárhæð 30 milljónir USD á ársgrundvelli þegar þær verða að fullu komnar til framkvæmda í byrjun árs 2018.
Efnahagsreikningur félagsins er sem fyrr sterkur, eiginfjárhlutfall er 44% og handbært fé og markaðsverðbréf ríflega 250 millljónir USD. Stefna félagsins varðandi fjárhagslegan styrkleika hefur alltaf verið rökstudd með því að rekstrarumhverfi flugfélaga er sveiflukennt. Félagið er því vel í stakk búið að takast á við þær sveiflur sem um þessar mundir eiga sér stað í rekstrarumhverfi þess. Við gerum áfram ráð fyrir hóflegum innri vexti á árinu og langtímahorfur fyrirtækisins eru góðar.“
Nánari upplýsingar veita:
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801.