Vátryggingafélag Íslands hf. mun birta ársreikning 2016, miðvikudaginn 16. febrúar næstkomandi eftir lokun markaðar.
Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins verður haldinn morguninn eftir, þann 17. febrúar, í höfuðstöðvum VÍS, Ármúla 3, 5. hæð, kl. 08:30. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti frá kl. 08:15.
Jakob Sigurðsson, forstjóri, mun kynna afkomuna og svara spurningum.
Að fundi loknum verður hægt að nálgast kynningarefni vegna fundarins á vefsíðu félagsins: http://vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestar/