Leiðrétting: VÍS: Birting ársreiknings þann 16. febrúar nk. og kynningarfundur 17. febrúar nk.


Ársreikningur verður birtur fimmtudaginn 16. febrúar nk. en ekki miðvikudaginn 16. febrúar nk. eins og kom fram í fyrri tilkynningu. Er tilkynningin leiðrétt hér með.

 

Vátryggingafélag Íslands hf. mun birta ársreikning 2016, fimmtudaginn 16. febrúar næstkomandi eftir lokun markaðar.

Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins verður haldinn morguninn eftir, þann 17. febrúar, í höfuðstöðvum VÍS, Ármúla 3, 5. hæð, kl. 08:30. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti frá kl. 08:15.

Jakob Sigurðsson, forstjóri, mun kynna afkomuna og svara spurningum.

Að fundi loknum verður hægt að nálgast kynningarefni vegna fundarins á vefsíðu félagsins: http://vis.is/vis/fjarfestar/fjarfestar/