Í viku 7 keypti Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 3.000.000 eigin hluti að kaupverði 53.450.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
16.2.2017 | 12:29:52 | 16.806 | 17,70 | 297.466 |
16.2.2017 | 12:36:52 | 983.194 | 17,70 | 17.402.534 |
17.2.2017 | 09:59:11 | 167.000 | 17,95 | 2.997.650 |
17.2.2017 | 09:59:38 | 11.066 | 17,95 | 198.635 |
17.2.2017 | 09:59:43 | 821.934 | 17,95 | 14.753.715 |
17.2.2017 | 10:36:59 | 1.000.000 | 17,80 | 17.800.000 |
Samtals | 3.000.000 | 53.450.000 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 3. október 2016.
Sjóvá átti 71.190.770 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 74.190.770 eigin hluti eða sem nemur 4,75% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 48.892.365 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 3,13% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 725.500.204 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 130.945.271 hlutum eða sem nemur 8,38% af útgefnum hlutum í félaginu, en þó má heildarkaupverð ekki vera hærra en 1.700.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins 2017, en þó aldrei lengur en til 11. mars 2017, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við VIII. kafla laga um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð um innherjaupplýsingar og markaðssvik nr. 630/2005, sem ber heitið „Viðskipti með eigin bréf í endurkaupaáætlunum og verðjöfnun fjármálagerninga.“
Nánari upplýsingar veitir:
Hermann Björnsson, forstjóri s. 440-2000