Í febrúar flutti Icelandair rúmlega 200 þúsund farþega og voru þeir 11% fleiri en í febrúar á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 18% og sætanýting var 75,9% samanborið við 79,0% í sama mánuði í fyrra. Farþegar Flugfélags Íslands voru tæplega 23 þúsund í febrúar og fjölgaði um 2% á milli ára. Framboð félagsins var aukið um 29% samanborið við febrúar 2016 og skýrist það af flugi til Aberdeen sem flogið er í samstarfi við Icelandair og hófst í mars 2016. Sætanýting nam 68,2%. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 7% á milli ára. Fraktflutningar drógust saman um 13% frá því á síðasta ári. Skýrist það af verkfalli sjómanna á Íslandi sem hefur haft í för með sér samdrátt í útflutningi á fiski. Herbergjanýting á hótelum félagsins jókst á milli ára var 85,6% samanborið við 84,0% í fyrra.
ICELANDAIR | FEB 17 | FEB 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 200.304 | 180.749 | 11% | 406.038 | 354.574 | 15% |
Sætanýting | 75,9% | 79,0% | -3,1 %-stig | 74,7% | 76,6% | -1,9 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 772,8 | 652,7 | 18% | 1.628,0 | 1.353,7 | 20% |
FLUGFÉLAG íSLANDS | FEB 17 | FEB 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 22.543 | 22.044 | 2% | 42.819 | 42.443 | 1% |
Sætanýting | 68,2% | 77,7% | -9,5 %-stig | 65,4% | 73,8% | -8,5 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 11,3 | 8,8 | 29% | 22,4 | 17,8 | 26% |
LEIGUFLUG | FEB 17 | FEB 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 100,0% | 100,0% | 0,0 %-stig | 94,4% | 98,0% | -3,6 %-stig |
Seldir blokktímar | 1.871 | 2.022 | -7% | 3.718 | 4.170 | -11% |
FRAKTFLUTNINGAR | FEB 17 | FEB 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 7.525 | 8.661 | -13% | 14.922 | 17.291 | -14% |
HÓTEL | FEB 17 | FEB 16 | BR. (%) | ÁTÞ 17 | ÁTÞ 16 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 25.116 | 22.765 | 10% | 52.923 | 47.100 | 12% |
Seldar gistinætur | 21.511 | 19.117 | 13% | 40.745 | 33.899 | 20% |
Herbergjanýting | 85,6% | 84,0% | 1,7 %-stig | 77,0% | 72,0% | 5,0 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010